Alþingi ROCKS!!!!
Fjölbreytt síða
18.01.2006 15:31:21 / alexander

jæja það eruð sumir að æsa yfir þessari síðu. Það eru sumir sem taka þessu allt of alvarlega við erum nú bara að bulla eitthvað og algjör óþarfi að æsa sig gott fólk:D

Andri Matt


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.01.2006 18:44:31 / alexander

Gríðarleg eftirspurn eftir miðum á HM í Þýskalandi

Skipuleggjendur Heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu sem fram fer í sumar í Þýskalandi hafa sent frá sér tilkynningu þar sem að kemur fram að 677,900 aðilar hafi óskað eftir yfir 6 millj. miðum á leiki keppninnar. Aðeins 250.000 miðar eru í boði fyrir þessa aðila en dregið verður úr umsóknum þann 31. janúar og er greinilegt að margir sitja eftir með sárt ennið þar sem að eftirspurnin er gríðarleg eftir miðum. Þeir leikir sem flestir óskuðu eftir að fá miða á í riðlakeppninni eru: Þýskaland - Pólland (14. júní í Dortmund), Brasilía - Ástralía (18. júní í München), Svíþjóð - England (20. júní Köln), Holland - Argentína (21. júní Frankfurt).


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 17:13:10 / alexander

Veðurhorfur til kl. 18 á morgun

Norðan 13-18 m/s S-lands í kvöld, allhvöss suðaustanátt við austurströndina en hægari vindur annars staðar. Víða snjókoma, en rigning á SA-landi og él V-lands. Vestan og suðvestan 5-15 m/s á morgun, hvassast norðvestantil. Léttir til á austanverðu landinu, en él vestantil. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum NA- og A-lands. Veðurhorfur næstu daga Umhleypingasamt. Norðvestlæg eða breytileg átt og snjókoma eða él á mánudag, en ákveðin norðvestanátt og léttir til sunnanlands á þriðjudag. Gengur í allhvassa suðaustanátt með snjókomu eða slyddu á miðvikudag og hlýnar, en kólnar með norðaustanátt og snjókomu á fimmtudag. Hlýnar aftur með suðaustanátt og rigningu á föstudag. Andri Matt

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 17:10:44 / alexander

Friðargæsla SÞ kom í veg fyrir átök í Súdan

Súdanskir hermenn fóru fylktu liði inn í bæinn Hamesh Koreb í austri Súdan í dag og hótuðu að flæma burt fyrrum liðsmenn hins suður-súdanska Frelsishers Súdans (SPLM). Hermennirnir hættu við og héldu á brott þegar eftirlitsmenn friðargæslu Sameinuðu þjóðanna (SÞ) mættu á vettvang. Samkvæmt friðarsamkomulagi áttu liðsmenn SPLM að yfirgefa austurhluta landsins og halda til sinna heima í suðri. Lítil hreyfing hefur verið á þeim og óttast SÞ að það stefni friði í Súdan í hættu á ný, en friðarsamkomulagið náðist eftir 21 árs stríð milli norðurs og suðurs í landinu. Andri Matt

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 17:17:32 / alexander

Veðurhorfur til kl. 18 á morgun

Vestlæg átt, víða 13-18 m/s en hægari vindur á Vesturlandi og Vestfjörðum. Éljagangur og kólnandi veður. Lægir í kvöld um mest allt land, en suðvestan 8-13 m/s NV- og V-lands. Vestlæg eða breytileg átt 5-10 m/s og él á morgun, en sunnan strekkingur og slydda fram eftir degi A-lands. Hiti 1 til 5 stig við austurströndina um miðjan dag á morgun, annars 0 til 8 stiga frost.

Veðurhorfur næstu daga

Vestlæg eða breytileg átt, dálítil snjókoma eða él og fremur kalt. Suðlæg átt og hlýnar talsvert á þriðjudag og miðvikudag, fyrst suðvestantil á landinu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 17:05:42 / alexander

Veðurhorfur til kl. 18 á morgun

Vestlæg átt, víða 13-18 m/s og él eða skúrir, en hægari norðaustantil í fyrstu og þurrt. Lægir mjög í kvöld og nótt, fyrst vestantil. Fremur hæg suðaustlæg eða breytileg átt á morgun og dálítil él sunnan og vestantil, annars úrkomulítið. Kólnandi veður, frost víða 0 til 6 stig með kvöldinu.

Veðurhorfur næstu daga

Suðvestanátt og él á miðvikudag, en austan hvassviðri og snjókoma sunnanlands með kvöldinu. Hvöss vestanátt um tíma á fimmtudag og minnkandi éljagangur, en annars hægari. Suðlægar áttir á föstudag og laugardag og vætusamt sunnan- og vestanlands. Á sunnudag lítur út fyrir vestanátt og éljagang. Hiti í kringum frostmark.

Andri Matt 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.01.2006 22:27:05 / alexander

Úrslit

Úrslit ú síðustu Skoðanakönnun Hvað er besta jólalag i heimi???? Queen Thank God its christmas 60% John Lennon So this is xmas 13% Bing Crosby have your self a little christmas 3% wham! last christmas 15% David bowie little drummer boy 10% 40 atkvæði

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.01.2006 22:18:40 / alexander

Ekkert stríð frá 1945 jafnmannskætt og borgarastyrjöldin í Kongó

Átta ára borgarastyrjöld í Kongó hefur með beinum og óbeinum hætti kostað nær fjórar milljónir manna lífið, segir í skýrslu sem birtast mun í breska læknatímaritinu The Lancet á morgun. Segir þar að um sé að ræða mannskæðustu átök í heiminum núna og ekkert stríð frá 1945 hefur valdið jafnmörgum dauðsföllum. Ótryggt vopnahlé ríkir nú að nafninu til í land inu en víða fara vopnaðir flokkar um héruð Kongó og ræna og myrða fólk og er því ljóst að harmleikurinn er ekki á enda. Sameinuðu þjóðirnar eru nú með fjölmennara friðargæslulið, um 17.000 manns, í Kongó en í nokkru öðru landi en það hefur ekki dugað til að stöðva átökin að fullu. Niðurstöður skýrsluhöfunda í The Lancet byggjast á viðtölum við alls 19.500 fjölskyldur en rannsókn þeirra lauk árið 2004. Er síðan framreiknað út frá frásögnum fólksins hvert mannfallið hefur verið hjá þjóðinni allri og niðurstaðan að alls hafi um 3,9 milljónir manna týnt lífi. Tíðni dauðsfalla í Kongó er talin vera um 2,1 af hverjum þúsund á mánuði eða um 40% hærri en að jafnaði í Afríkuríkjum sunnan Sahara. Má gera ráð fyrir að þessi munur skýrist að mestu leyti af átökunum í landinu. Vannæring, vosbúð af ýmsu tagi og sjúkdómar valda mestu manntjóni. „Langflestir hafa látið lífið af völdum sjúkdóma sem auðvelt er að meðhöndla eða fyrirbyggja, en ekki af völdum ofbeldis,“ segir í skýrslunni. „Átökin í Kongó eru sem fyrr mannskæðasta dæmið um neyðarástand hjá almenningi í heiminum núna. Brýnt er að bæta aðstæður varðandi öryggi og auka mannúðarhjálp til að bjarga mannslífum.“ Umsjón með gerð skýrslunnar hafði Richard Brennan hjá Alþjóðlegu hjálparnefndinni, IRC, sam tökum með aðsetur í New York. Samtökin gáfu út skýrslu í desember þar sem sagði að rúmlega 31.000 manns dæju í hverjum mánuði í Kongó vegna átakanna í landinu. Börn eru stór hluti fórnarlambanna. Haft er eftir Brennan í frétt á vef BBC að athygli umheimsins og sú aðstoð sem veitt hafi verið óbreyttum íbúum í Kongó sé í „hróplegu ósamræmi“ við þörfina. Bardögum lauk í borginni Kisangani í austurhlutanum árið 2002 og lækkaði þá tíðni dauðsfalla um 80%. Mannfallið í Kongó er verulega hærra í austurhéruðunum Ituri og Katanga en annars staðar. Þar er mikið af námunum sem hafa valdið því að grannríkin hafa haft bein afskipti af borgarastyrjöldinni. Hafa þau sum hver beinlínis sent herlið inn í austurhéruðin til að elta uppi vopnaða flokka sem flúið hafa til Kongó eftir ódæði heima fyrir. Önnur hafa róið undir með því að vopna vígahópa eða styrkja þá með peningum. Blóðug innanlandsstríð hafa geisað í sumum grannríkjunum, einkum Angóla, Rúanda, Búrúndí og Súdan síðustu áratugi en einnig í Úganda þar sem stjórnarherinn á enn í höggi við hryðjuverkamenn í hópi er nefnir sig Her drottins. Um tugur Afríkuríkja hefur haft bein afskipti af stríðinu í Kongó. Nefna má að stjórn Roberts Mugabe, forseta í Simbabve, sem á ekki landamæri að Kongó, hefur reynt að tryggja sér hluta af auðlindaþýfinu sem erlendir aðilar hafa hrifsað til sín með aðstoð innlendra leppa. Fjölmörg verðmæt efni eru í jörðu í Kongó, gull, eðalsteinar og ýmis sjaldgæf efni sem notuð eru í iðnaði. Kongó var lengi belgísk nýlenda en hlaut sjálfstæði 1960. Höfuðborgin Kinshasa hét eitt sinn Leopoldville. Kongó er geysistórt land, um 2,3 milljónir ferkílómetra, eða fjórum sinnum stærra en Frakkland, svo dæmi sé nefnt. Íbúar eru taldir vera liðlega 50 milljónir. Innviðir landsins, vegir og annað af því tagi, eru í rúst og erfitt að fá traustar fregnir af því sem gerist í mörgum afskekktum héruðum. Boðuðum forseta- og þing kosningum, sem áttu að fara fram í fyrra, var frestað en Joseph Kabila, núverandi forseti, heitir því að þær verði haldnar í júní á þessu ári.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.01.2006 22:14:51 / alexander

Veðurhorfur næsta sólarhringinn

Viðvörun: Búist er við stormi víða um land í kvöld og nótt. Sunnan hvassviðri eða stormur um mest allt land. Talsverð rigning sunnan- og vestantil, en þurrt að mestu norðaustanlands. Snýst í hægari vestan átt með slyddu og síðar snjókomu um landið vestanvert um og upp úr miðnætti. Lægir um austanvert landið seint í nótt og í fyrramálið og léttir síðan til. Suðvestan 8-15 og él um vestanvert landið á morgun, en bætir í vind annað kvöld, einkum um landið norðvestanvert. Fremur milt í fram á nótt, en kólnar síðan. Frost 0 til 5 stig síðdegis á morgun.

Veðurhorfur næstu daga

Áfram umhleypingar. Hvöss sunnanátt, rigning og hlýindi aðfaranótt mánudags og fimmtudags annars svalar suðvestlægar áttir með éljum suðvestanlands en bjartara veðri á NA- og A-landi.

Andri Matt.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2006 21:50:43 / alexander

Þ J Ó Ð H Á T Í Ð A R S J Ó Ð U R

Þ J Ó Ð H Á T Í Ð A R S J Ó Ð U R
auglýsir eftir umsóknum
um styrki úr sjóðnum á árinu 2006

Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361 30. september1977, sbr. auglýsingar um staðfestingu á breytingu á skipulagsskrá fyrir Þjóðhátíðarsjóð, nr. 673 frá 12. september 2000 og nr. 987 frá 19. október 2005, er tilgangur sjóðsins „að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.“

Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.

Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs.  Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2006. Eldri umsóknir ber að endurnýja.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2006 21:05:30 / alexander

Atlantsolía og Orkan hækka einnig bensín

Atlantsolía hækkaði í dag verð á bensínlítra um 1,40 krónur og kostar lítrinn nú 108,30 krónur. Orkan fylgdi í kjölfarið og kostar bensínlítrinn þar 108,20 krónur. Verð á dísilolíu er áfram 106,30 krónur hjá félögunum. Stóru olíufélögin þrjú hækkuðu verð á bensíni í gær um 1,50 krónur og vísuðu til hækkunar á heimsmarkaðsverði. Þar er algengt verð á bensínlítra 109,80 krónur í sjálfsafgreiðslu og lítri af dísilolíu kostar almennt 107,80 krónur. Andri Matt

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.01.2006 21:03:49 / alexander

Dæmi um hringormasmit eftir neyslu á hálfhráum fiski

Í nýjasta tölublaði Læknablaðsins er greint frá tveimur nýlegum tilfellum hringormasmits í fólki hér á landi. Fannst hringormur í koki tveggja einstaklinga, sem neytt höfðu illa hitaðra rétta úr ferskum steinbít fimm og sex dögum áður.

Fram kemur í grein Karls Skírnissonar, líffræðings, í blaðinu, að í báðum tilfellum höfðu lirfur, upprunnar úr fiskholdinu, þroskast á þeim tíma sem liðinn var frá smitun. Í fyrra tilvikinu vaknaði ungur karlmaður við að ormur var að hreyfa sig í koki. Eftirgrennslan leiddi í ljós að sex dögum áður hafði maðurinn neytt snöggsteikts steinbíts sem keyptur hafði verið ferskur í fiskbúð. Hvorki varð vart við fleiri orma eða einkenni sem bentu til frekara smits.

Í hinu tilfellinu fann ung kona fyrir ertingu í hálsi. Þegar hún hóstaði barst lirfan upp í kok. Fimm dögum áður hafði konan verið gestgjafi í matarboði þar sem ofnréttur úr stórum, ferskum steinbít var fram borinn. Konan sem síðar hóstaði upp lirfunni smakkaði ásamt tveimur öðrum matargestum hálfhráan bita úr réttinum eftir hálftíma bökun í ofni. Þar sem steinbíturinn var enn glær var ákveðið að baka réttinn þar til fiskurinn var orð­inn hvítur og gegnheitur. Konan fann fyrir greini­legri ertingu í hálsi í 12 daga eftir að ormurinn hafði gengið upp í kok.

Í greininni í Læknablaðinu segir að menn séu ekki náttúrulegir lokahýslar en hringormar, sem koma úr fiski, geti lifað í fólki og valdið sjúkdómi. Hefðbundnar matreiðsluaðferðir hér á landi sem fela í sér suðu eða eldun á ferskum fiski upp fyrir 70°C hafi að líkindum að mestu komið í veg fyrir smitun. Hætta sé þó á að tilfellum geti fjölgað hér á landi aukist neysla á hráum fiski og hráum hrognum eða fiskréttum sem ekki hafa verið hitaðir eða frystir nægjanlega lengi til að drepa í þeim hringorma.

Andri Matt


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.01.2006 02:19:25 / alexander

Gleðilegt ár

Jæja þá er árið 2005 liðið og árið 2006 komið mér fannst Kryddsíldin vera mjög skemmtileg en ég og allir í vinstri bleikum óskum landsmönnum öllum gleðilegt nýtt ár og þökkum öllum stjórnmálamönnum fyrir að stiðja okkur og alla sem koma á þessa síðu. Andri Matt (varaformaður Vinstri Bleikra)

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 12:50:49 / alexander

Gleðileg jól

jæja þið sáuð að Friðgeir Jón Unnarsson vann með yfiburðum i kostnigum um hver mundi verða bæjarstjórinn á Raufarhöfn.

!Ĭč优Ϝ剅刭䝉呈›攣散搹㬸倠䑁䥄䝎刭䝉呈›⸵瀴㭴䈠剏䕄ⵒ佔㩐⌠捥㥥㡤※䅐䑄义ⵇ䕌呆›⸵瀴㭴倠䑁䥄䝎䈭呏佔㩍〠湩※佂䑒剅䰭䙅㩔⌠捥㥥㡤※䥗呄㩈㔠⸰㔸瑰※䅐䑄义ⵇ佔㩐〠湩※佂䑒剅䈭呏佔㩍⌠捥㥥㡤※䕈䝉呈›㈱㜮瀵㭴䈠䍁䝋佒乕ⵄ佃佌㩒琠慲獮慰敲瑮攀瑮

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2